Bílar

Framkvæmdastjóri Toyota: Hljóður meirihluti óviss um að rafmagn sé eina svarið

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Akio Toyoda framkvæmdastjóri Toyota.
Akio Toyoda framkvæmdastjóri Toyota.

„Vegna þess að rétta svarið er óljóst, ættum við ekki að takmarka okkur við einungis einn möguleika,“ sagði Akio Toyoda, framkvæmdastjóri Toyota við kynningu á raf-Hilux hugmyndabílnum í Tælandi.

„Ég tel að við þurfum sem samfélag að horfa raunsætt á hlutina þegar við ræðum um hvort við erum fær um að notast eingöngu við rafhlöðudrifna rafbíla og hvort innviðir okkar höndli slíka innleiðingu. Rétt eins sjálfkeyrandi bílarnir sem við eigum öll að vera að nota á þessum tímapunkti, þá held ég að rafbílar muni taka lengri tíma til að verða meginkosturinn en fjölmiðlar vilja láta okkur trúa. Í sannleika sagt eru rafbílar ekki eina leiðin til að ná kolefnishlutleysismarkmiðum heimsins,“ bætti Toyoda við.

Hilux-inn sem var kynntur virkaði eins og hann væri skammt frá því að vera tilbúinn til framleiðslu. Toyota gaf hins vegar ekkert upp um nein tæknileg atriði bílsins. Toyoda sagði að Hilux-inn væri „hannaður til að stuðla að kolefnishlutleysi og betra umhverfi fyrir alla.“ Toyota vill fara varlega í að veðja öllu sínu á rafbílavæðinguna.

Meðfylgjandi er myndband af YouTube-rásinni RonsRides News.

„Meðal fólks sem starfar í bílaiðnaðinum er hljóður meirihluti sem hefur efasemdir um hvort rafbílar séu raunverulega eina svarið. En þessi meirihluti sér að það er í tísku svo það er erfitt að tala gegn því,“ sagði Toyoda.

General Motors, Volkswagen og Honda, stórir keppinautar Toyota hafa á hinn bóginn sett sér tímaramma til að rafvæða allt sitt vöruframboð. 

Toyota hefur á móti fjárfest í fjölbreyttari lausnum, þar á meðal í vetnisknúnum rafbílum og tvinnbílum. En þrátt fyrir það all, þá ætlar Toyota að setja á Evrópumarkað fimm hreina rafbíla í viðbót við bZ4X fyrir lok árs 2026.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×