Innlent

Sá látni líklega ferðamaðurinn sem var leitað

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Hinn látni fannst í Skriðum austan Hvalvatnsfjarðar.
Hinn látni fannst í Skriðum austan Hvalvatnsfjarðar.

Skömmu fyrir klukkan sjö í kvöld fann áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar látna manneskju og telur lögreglan að líkur séu á því að um ferðamanninn sem leitað var að fyrr í dag sé að ræða.

Hinn látni fannst í Skriðum austan Hvalvatnsfjarðar. Það eigi eftir að staðfesta málið með formlegum hætti. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Björunarsveitir leituðu í dag Bernds Meyer, þýsks ferðamanns í Flateyjardal en hann var einn á ferð og skildi bíl sinn eftir við eyðibýlið Hof fyrir tveimur vikum. Eiginkona hans hafði ekki heyrt frá honum síðan 14. júlí síðastliðinn. 

Meyer er fæddur árið 1947 og var einn á ferðalagi um landið en hann kom hingað í júní. Hann hafði gist í Grenivík um miðjan júlí áður en hann hélt í Flateyjardal í gönguferð. Hann hafði hringt í eiginkonu sína 14. júlí síðastliðinn, þá staddur í Flateyjardal. 

Spor fundust við leitina í dag sem erfitt var að greina hvort tilheyrðu Meyer eða ekki. 

Fyrr í kvöld hafði Vísir það eftir formanni björgunarsveitarinnar Týs að allir hefðu verið boðaðir heim og leit virtist vera lokið.

Fréttin var uppfærð 29. júlí. 


Tengdar fréttir

Fundu spor fyrr í dag en erfitt sé að greina þau

Spor fundust í Flateyjardal þar sem björgunarsveitir leita að þýskum ferðamanni, ekki er víst hvort sporin tilheyri manninum sem um ræðir. Lögreglan á Norðurlandi eystra segir 100 manns vera að störfum við leitina.

Þýsks ferðamanns leitað í Flateyjardal

Björgunarsveitir leita nú aldraðs þýsks ferðamanns í Flateyjardal milli Skjálfanda og Eyjafjarðar á Norðurlandi. Eiginkona mannsins heyrði síðast frá honum 14. júlí.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×