Fótbolti

Gleðin við völd á æfingu hjá stelpunum okkar fyrir leikinn mikil­væga gegn Ítalíu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Mikið fjör, mikið gaman í Crewe.
Mikið fjör, mikið gaman í Crewe. Vísir/Vilhelm

Ísland mætir Ítalíu í gríðarlega mikilvægum leik í D-riðli Evrópumóts kvenna í fótbolta á morgun. Gleðin var við völd á síðustu æfingu fyrir leik en ljóst er að Ísland þarf sigur ætli liðið sér áfram í 8-liða úrslit þar sem ógnarsterkt lið Frakklands bíður í lokaleik riðilsins.

Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis er í Crewe á Englandi þar sem stelpurnar dvelja milli leikja. Hann tók nokkrar myndir af æfingu dagsins sem má sjá hér að neðan. 

Mikil gleði ríkti á æfingasvæðinu í Crewe en reikna má þó með stelpunum okkar öllu alvarlegri er leikurinn gegn Ítalíu verður flautaður á. Líkt gegn Belgíu verður leikið á akademíuvelli Manchester City á morgun.

Guðný Árnadóttir, Guðrún Arnardóttir og Alexandra Jóhannsdóttir.Vísir/Vilhelm
Einn, tveir og ...Vísir/Vilhelm
Guðný Árnadóttir og Agla María Albertsdóttir.Vísir/Vilhelm
Spurning hvort Berglind Björg Þorvaldsdóttir sé að reyna segja okkur eitthvað.Vísir/Vilhelm
Mismunandi dagsverkin.Vísir/Vilhelm
Alltaf gaman að hita upp.Vísir/Vilhelm
Spennandi og gaman að sjá hvað gerist.Vísir/Vilhelm
Sandra Sigurðardóttir er klár í slaginn.Vísir/Vilhelm
Dagný Brynjarsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir elska gott þungarokk en Sveindís Jane er einnig friðarsinni.Vísir/Vilhelm
Telma Ívarsdóttir, einn af þremur markvörðum Íslands.Vísir/Vilhelm
Svava Rós Guðmundsdóttir hefur fengið nóg og vill fá tveggja mínútna brottvísun á mótherja sína. Því miður er ekki um handboltaleik að ræða.Vísir/Vilhelm
Skokkið góða.Vísir/Vilhelm
Hin víðsfræga FIFA 11 upphitunaræfing.Vísir/Vilhelm
Og meira.Vísir/Vilhelm
Hallbera Guðný Gísladóttir ætlar að gleypa boltann er hann kemur niður.Vísir/Vilhelm


Tengdar fréttir

Alls ekkert „fake“ hjá stelpunum okkar

Guðrún Þórbjörg Sturlaugsdóttir er styrktarþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta og hún eins og aðrir í hópnum tala vel um andann og stemmninguna í liðinu á EM í Englandi.

Mamma Karólínu er ekki öfundsjúk út í mömmu Gló

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir á mömmu á Íslandi og hefur síðan fundið sér aðra mömmu úti hjá Bayern München. Báðar mömmurnar eru mættar á EM í Englandi, önnur til að horfa en hin spilar með íslenska liðinu eins og Karólína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×