Fótbolti

Segja Raphinha munu enda í Katalóníu

Hjörvar Ólafsson skrifar
Spænskir fjölmiðlar segja Raphinha vera á leiðinni í herbúðir Barcelona. 
Spænskir fjölmiðlar segja Raphinha vera á leiðinni í herbúðir Barcelona.  Vísir/Getty

Brasilíski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Rap­hinha, er á leið frá Leeds United til Barcelona. Spænskir fjölmiðlar greina frá þessu.

Raphinha á sex mánuði eftir af samningi sínum hjá Leeds United og hefur verið sterklega orðaður við Arsenal og Chelsea í sumar, auk Katalóníufélagsins sem virðist ætla að vinna kapphlaupið um kantmanninn. 

Kaupverðið ku vera í kringum 60 milljónir evra. 

Gangi félagaskiptin í gegn verður Raphinha fjórði leikmaður­inn sem Barcelona bætir við sig síðan síðasta keppnistímabili lauk. 

Áður höfðu Pablo Tor­re, Franck Kess­ié og Andreas Christien­sen gengið til liðs við spænska stórveldið.

Þá segir spænskir miðlar enn fremur að Robert Lew­andowski sem er á förum frá Bayern München nálgist það að semja við Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×