Fótbolti

Ótrúlega hamingjusamur fyrir hennar hönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sandra Sigurðardóttir gengur inn á völlinn fyrir sinn fyrsta leik á Evrópumóti. Við hlið hennar er fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir sem var fara að spila sinn ellefta leik.
Sandra Sigurðardóttir gengur inn á völlinn fyrir sinn fyrsta leik á Evrópumóti. Við hlið hennar er fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir sem var fara að spila sinn ellefta leik. Vísir/Vilhelm

Íslenska kvennalandsliðið spilaði sinn ellefta leik í sögu úrslitakeppni Evrópumóts kvenna á móti Belgíu og Sandra Sigurðardóttir hafði verið á bekknum í þeim öllum. Nú fékk hún aftur á móti að standa í markinu í fyrsta sinn.

Sandra átti mjög góðan leik, varði vel, greip vel inn í og hélt yfirvegun allan tímann sem var mikilvægt. Hún gat lítið gert við jöfnunarmarkinu sem var skorað úr vítaspyrnu.

Ólafur Pétursson, markmannsþjálfari landsliðsins, ræddi við fjölmiðlamenn á æfingunni daginn eftir leik og fór meðal annars yfir leikinn og frammistöðu Söndru.

„Við erum búnir að skoða niðurstöðu leiksins og við vorum vel yfir á langflestum sviðum. Það er því svekkjandi að hafa ekki náð að klára leikinn,“ sagði Ólafur Pétursson, markmannsþjálfari íslenska liðsins.

„Við erum bara bjartsýn. Þetta er í okkar höndum, liðið er gott og í góðu standi. Það er skemmtilegur mórall og mikil gleði. Vonandi náum við að eiga góðan leik á fimmtudaginn og vinna Ítalina,“ sagði Ólafur.

Ólafur Pétursson ræðir hér við yngri markmenn íslenska landsliðsins þær Auði Sveinbjörnsdóttur Scheving og Telmu Ívarsdóttur.Vísir/Vilhelm

Sandra er nú orðin 35 ára gömul en hún var bara 22 ára þegar hún fór á sitt fyrsta Evrópumót í Finnlandi sumarið 2009.

„Ég er ótrúlega hamingjusamur fyrir hennar hönd að hafa loksins fengið leik. Fjórða mótið og að spila sínar fyrstu mínútur og gerði það vel sem er bera áframhald á hennar spilamennsku. Hún er búin að spila virkilega vel fyrir okkur síðustu árin. Þetta er bara geggjað,“ sagði Ólafur en hvað gerði Sandra vel í þessum leik.

„Hún varði vel þegar hún þurfti á því að halda, greip inn í og var róleg. Það er það sem skiptir máli. Hún er hægt og sígandi búin að bæta sig enda æfir hún vel og hugsar vel um sig eins og allir markverðirnir gera. Það er að skila sér,“ sagði Ólafur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×