Fótbolti

Sif Atla: Kvennaknatt­spyrnan er í dag sú í­þrótt sem fólk á að hoppa á

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sif Atladóttir ræðir hér við Svövu Kristínu á æfingasvæði íslenska landsliðsins í dag
Sif Atladóttir ræðir hér við Svövu Kristínu á æfingasvæði íslenska landsliðsins í dag Vísir/Vilhelm

Sif Atladóttir og félagar hennar í landsliðinu hafa nú byrjað æfingar á enskri grundu og hún var ein af fjórum reynsluboltum sem hittu íslenska blaðamenn í dag.

Svava Kristín Grétarsdóttir ræddi við Sif í kvöldfréttum Stöðvar tvö og þá sérstaklega um mikinn áhugann á Evrópumótinu í Englandi en uppselt var á fyrsta leik mótsins sem var spilaður á Old Trafford.

Sif finnst umfjöllun um mótið vera meiri en áður en hún er að mæta á sitt fjórða Evrópumót.

„Ef fólk kemst til London og getur labbað um London þá væri það svolítið skemmtilegt. Þú hefðir ekkert séð enska landsliðið á öllum veggjum og út um allt. Andstæðingarnir líka. Sara Björk er á einhverju risaskilti þarna. Þetta er allt annað,“ sagði Sif og vísaði þar í mynd Hafliða Breiðafjörð af Söru Björk Gunnarsdóttur sem birtist risastór á Piccadilly Circus.

Það má sjá frétt Svövu hér fyrir neðan.

Klippa: Sif Atladóttir: Komnar til Englands og þar er stemmning í öllu landinu fyrir EM

„Fyrirmyndirnar eru þarna úti og þetta er miklu stærra og meira. Lucy Bronce er á liggur við Buckingham Palace. Þetta er klárlega miklu miklu stærra. Það gerir það líka að verkum að Old Trafford fylltist í gær. Það er uppselt á okkar leiki. Þessi umfjöllun er bara stærri og kvennaknattspyrnan er í dag sú íþrótt sem fólk á að hoppa á,“ sagði Sif.

Þær fengu kannski ekki mikið af stóru völlunum í Englandi en Sif vill ekki horfa á það neikvæða í því enda breyta þær því ekki úr þessu.

„Þetta er heimili fótboltans og þó að gagnrýnin hafi komið þá skiptir það ekki máli. Maður finnur bara að maður er kominn til Englands, það er stemmning og ég finn það að fólk er peppað fyrir að vera hérna. Það er stemmning í öllu landinu fyrir EM,“ sagði Sif.

Íslenska liðið spilar sinn fyrsta leik á sunnudaginn þegar liðið mætir Belgíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×