Innlent

Eyrún Ingibjörg ráðin sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar

Kjartan Kjartansson skrifar
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar. Aðsend

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti samhljóða að ráða Eyrún Ingibjörgu Sigþórsdóttur í starf sveitarstjóra Dalvíkurbyggðar næstu fjögur árin. Hún var áður oddviti og sveitarstjóri á árunum 2006 til 2014.

Í tilkynningu frá sveitarfélaginu kemur fram að Eyrún er viðskiptafræðingur, með meistaragráðu í verkefnastjórnun. Hún hafi starfað í sveitarstjórnamálum síðastliðin tuttugu ár sem oddviti, sveitarstjóri og ráðgjafi. Hún sé ein þriggja eigenda Ráðrík ráðgjafastofu sem sérhæfir sig í ráðgjöf varðandi sveitarstjórnamál.

Eyrún er fædd í Vestmannaeyjum, gift Tryggva Ársælssyni og eiga þau fjögur börn saman en fyrir átti Tryggvi eitt barn. Þau hjónin hafa rekið útgerð frá Tálknafirði síðan 1991.

Sjálfstæðisflokkurinn og K-listinn mynduðu meirihluta eftir sveitarstjórnarkosningarnar í maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×