Formúla 1

Toto kemur Hamilton til varnar: „Hefur verið að prófa nýja parta“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Lewis Hamilton og Toto Wolff.
Lewis Hamilton og Toto Wolff. Clive Mason/Getty Images

Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes í Formúlu 1, hefur komið sjöfalda heimsmeistaranum Lewis Hamilton til varnar eftir að ökuþórinn var hægari en liðsfélagi sinn, George Russel, í tímatökum þriðju keppnina í röð.

Hamilton mun ræsa sjöundi í Bakú síðar í dag, tveimur sætum á eftir liðsfélaga sínum. Hamilton var 0,212 sekúndum hægari en Russel í tímatökunum í gær.

Þetta er nú þriðja keppnin í röð þar sem heimsmeistarinn sjöfaldi er hægari en liðsfélagi sinn í tímatökum og þegar horft er yfir allt keppnistímabilið er þetta í fimmta skiptið sem hann ræsir fyrir aftan hinn Mercedes bílinn.

Toto Wolff hefur þó komið Hamilton til varnar og segir ástæðuna fyrir því að hann var hægari en liðsfélagi sinn í gær hafi verið nýir partar bílsins.

„Lewis [Hamilton] er bæuinn að vera að prófa frekar tilraunakennda parta á bílnum sínum og í gær var hann með öðruvísi gólf í bílnum sem virkaði ekki,“ sagði Wolff.

Þrátt fyrir að Hamilton hafi nú verið hægari en Russel í tímatökum á Spáni, í Mónakó og nú Bakú, þá segir Wolff enn of snemmt að greina einhverskonar mynstur.

„Ég er mjög nálægt þessu og sé að á einni æfingunni er annar þeirra hraðari og á þeirri næstu er tekur hinn við. Af því að bíllinn er svo nákvæmur þá máttu ekki stíga eitt feilspor þegar kemur að tilraunum á bílnum. Ef þú gerir það þá myndast strax 0,2-0,3 sekúndna bil á milli þeirra.“

„En við þurfum að gera þessar tilraunir til að læra á bílinn og hvernig við keyrum hann. Í seinustu þrem keppnum hafa þessar tilraunir klikkað hjá Hamilton, en ekki hjá Russel,“ sagði Wolff að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×