Fótbolti

Hannes Þór um mark Albaníu: „Mikil ein­földun að hann eigi að gera betur“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Rúnar Alex Rúnarsson í leik Íslands og Albaníu.
Rúnar Alex Rúnarsson í leik Íslands og Albaníu. Vísir/Diego

Ísland og Albanía gerðu 1-1 jafntefli í Þjóðadeildinni í fótbolta á Laugardalsvelli í gærkvöld. Landsliðsmarkvörðurinn fyrrverandi kom Rúnari Alex Rúnarssyni til varnar en margur taldi að hann hefði átt að geta betur í marki Albaníu.

Þegar hálftími var liðinn af leiknum kom Taulent Seferi gestunum frá Albaníu yfir með skoti af stuttu færi eftir að Rúnar Alex hafði varið skot en ekki náð að halda því.

Hannes Þór veit eitt og annað um markvörslu. Hér ver hann víti frá Lionel Messi á HM í Rússlandi.getty/Stefan Matzke

Hannes Þór – sem lék 77 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og stóð meðal annars vaktina á EM í Frakklandi og HM í Rússlandi - var meðal sérfræðinga Viaplay á leiknum. Fór hann yfir mark Albaníu og var ekki alveg á þeim buxunum að þetta væri jafn einfalt og hinir ýmsu sófasérfræðingar létu þetta hljóma.

„Mér finnst það mjög mikil einföldun að hann eigi að gera betur þarna,“ sagði Hannes Þór og hélt áfram.

„Það er verið að skjóta á markið af stuttu færi og Rúnar Alex hefur tvo kosti. Annars vega rað fara niður með lófana – eins og hann gerir – eða að reyna halda boltanum með því að fá hann í fangið. Þá held ég að það séu allar líkur á að hann fái boltann í gegnum sig og inn því þetta er af svo stuttu færi.“

Rúnar Alex sjálfur var spurður út í markið í spjalli við Stöð 2 og Vísi eftir leik.

„Þetta var skot af stuttu færi. Ég er ekki viss hvort boltinn hefði farið lengra í burtu hefði ég varið með fótunum. Ég vildi aldrei reyna halda þessum blauta bolta á blautu grasi. Ég ætlaði að reyna slá boltann í burtu og svo var það bara happa og glappa hvar frákastið myndi enda,“ sagði markvörður Íslands.

Dæmigerð augnablik sem verða að detta með okkur

Hannes Þór ræddi markið áfram og fór yfir hvernig svona augnablik þurfa að falla með íslenska landsliðinu ætli það sér aftur í hæstu hæðir.

„Svo er spurning hvernig snertingu Rúnar Alex nær þegar hann lendir í lófunum á honum. Í þessu tilfelli skoppar boltinn meter frá honum og hann er óheppinn að hann lendir hjá leikmanni Albaníu. Þetta eru augnablik sem verða að detta með okkur, hvort sem þú horfir á það frá markverðinum eða liðinu í heild,“ bætti Hannes Þór við.

Daníel Leó Grétarsson var í baráttunni við Seferi en miðvörðurinn var hænuskrefi á eftir framherjanum og því endaði boltinn í netinu.

„Það er leikmaður að negla á markið af sex metra færi, þetta er ekki alltaf svona klippt og skorið,“ sagði Hannes Þór að endingu um markið.


Tengdar fréttir

Arnar Þór: Þurfum að stokka það plan upp á nýtt

Arnar Þór Viðarsson sagði íslenska liðið hafa spilað of neðarlega í fyrri hálfleiknum gegn Albaníu í gær. Hann sagði að áætlanir vegna leiksins gegn San Marinó á fimmtudag hefðu breyst vegna breyttrar stöðu í riðli U-21 árs landsliðsins.

Einkunnir Íslands: Engar flugeldasýningar

Ísland náði í annað stigið sitt þegar þeir gerðu jafntefli á móti Albönum fyrr í kvöld á Laugardalsvelli. Leikið var í annarri umferð annars riðils B deildar Þjóðardeildarinnar og enduðu leikar 1-1 í kaflaskiptum leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×