Innlent

Fluttur á Land­spítala eftir vél­sleða­slys

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Þyrla landhelgisgæslunnar flutti manninn á Borgarspítalann. 
Þyrla landhelgisgæslunnar flutti manninn á Borgarspítalann.  Vísir/Vilhelm

Þyrla Landhelgisgæslunnar var í dag kölluð út að sækja mann sem hafði slasast á vélsleða á Geldingafelli við Langjökul. Ekki er vitað um alvarleika slyssins. 

Þyrlan var nýkomin af stað í æfingu þegar útkallið barst, að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar. RÚV greindi fyrst frá. 

Þyrlan lenti með hinn slasaða við Borgarspítalann klukkan korter yfir tvö í dag en Ásgeir segist hvorki vita hvernig líðan mannsins sé né hver aðdragandi slyssins var. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×