Spánn og Portúgal skiptu stigunum á milli sín í stórleiknum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ricardo Horta skoraði jöfnunarmarkið fyrir Portúgal.
Ricardo Horta skoraði jöfnunarmarkið fyrir Portúgal. David Ramos/Getty Images

Varamaðurinn Ricardo Horta reyndist hetja Portúgala er hann tryggði liðinu 1-1 jafntefli gegn Spánverjum í stórleik kvöldsins í Þjóðadeild Evrópu í fótbolta.

Alvaro Morata kom Spánverjum yfir með marki á 24. mínútu eftir stoðsendingu frá Pablo Sarabia. Það reyndist eina mark fyrri hálfleiksins og staðan því 1-0 þegar gengið var til búningsherbergja.

Það var svo varamaðurinn Ricardo Horta sem jafnaði metin fyrir Portúgal þegar um átta mínútur voru til leiksloka. Niðurstaðan varð því 1-1 jafntefli og Spánn og Portúgal eru með sitthvort stigið eftir eina umferð.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira