Innlent

Haraldur Rafn leiðir Pírata í Hafnarfirði

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Haraldur Rafn Ingvason, oddviti Pírata í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Haraldur Rafn Ingvason, oddviti Pírata í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Píratar

Haraldur Rafn Ingvason líffræðingur leiðir lista Pírata í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Í öðru sæti listans er Hildur Björg Vilhjálmsdóttir náms- og starfsráðgjafi. 

Fram kemur í tilkynningu frá Pírötum að aðrir frambjóðendur hafi fjölbreyttan bakgrunn en vinni saman sem samstilltur hópur Hafnfirðinga sem hlakki til að starfa að því með öðrum að gera Hafnarfjörð betri. 

Sjá má listann í heild sinni hér að neðan. 

  1. Haraldur R. Ingvason, líffræðingur / biologist
  2. Hildur Björg Vilhjálmsdóttir, náms- og starfsráðgjafi / career and guidance counselor
  3. Albert Svan Sigurðsson, landfræðingur / geographer
  4. Elísabet Dröfn Kristjánsdóttir, mannfræðingur / anthropologist
  5. Phoenix Jessica Ramos, vinnustaðaeftirlitskona og bókari / workplace inspector and accountant
  6. Ragnheiður Haralds Eiríksdóttir Bjarman, hjúkrunarfræðingur / nurse
  7. Leifur Eysteinn Kristjánsson, tæknimaður / technician
  8. Haraldur Óli Gunnarsson, tæknimaður / technician
  9. Kári Valur Sigurðsson, pípulagningamaður / plumber
  10. Hallur Guðmundsson, tónmenntakennari og tónlistamaður / music teacher and musician
  11. Haraldur Sigurjónsson, jarðfræðingur / geologist
  12. Aþena Lilja Ólafsdóttir, stúdent / student
  13. Eva Hlín Gunnarsdóttir, útstillingahönnuður / display designer
  14. Ýmir Vésteinsson, lyfjafræðingur / pharmacist
  15. Brynhildur Yrsa Valkyrja, kennari / teacher
  16. Lilja Líndal Sigurðardóttir, öryrki / on disability
  17. Hlynur Guðjónsson, vélvirki / mechanic
  18. Hildur Þóra Hallsdóttir, söngkona / singer
  19. Gunnar Jónsson, leikari / actor
  20. Helga Guðný Hallsdóttir, nemi / student
  21. Haraldur Skarphéðinsson, skrúðgarðyrkjumeistari / landscape gardener
  22. Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir, þroskaþjálfi / social educator


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×