Handbolti

Bjarki Már með þrjú mörk í stóru tapi Lemgo

Atli Arason skrifar
Bjarki Már Elísson skoraði þrjú mörk.
Bjarki Már Elísson skoraði þrjú mörk. Getty Images

Lemgo tapaði afar óvænt með 12 mörkum gegn fallbaráttu liði Minden í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 20-32.

Bjarki Már Elísson hefur oft átt betri leiki í liði Lemgo en Bjarki gerði þrjú mörk úr átta skotum.

Ósigur Lemgo þýðir að liðið er áfram í níunda sæti deildarinnar með 24 stig. Fyrir Minden gerir þessi sigur að verkum að liðið lyftir sér aðeins frá fallsvæðinu en Minden er í 16. sæti deildarinnar með 13 stig. Liðið er þremur stigum frá öruggu sæti en liðin tvö í fallsætunum fyrir neðan Minden eiga þó þrjá leiki til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×