Handbolti

Upphitun fyrir 20. umferð í Olís: „Það geta fullt að liðum orðið deildarmeistarar“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Atli Már Báruson og félagar í Haukum er á toppnum.
Atli Már Báruson og félagar í Haukum er á toppnum. Vísir/Vilhelm

Baráttan um deildarmeistaratitilinn í Olís deild karla í handbolta og baráttan um heimavallarréttinn í fyrstu umferð úrslitakeppninnar verður í fullum gangi í kvöld og á morgun.

Stefán Árni Pálsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson hituðu upp fyrir tuttugustu umferð Olís deildar karla í handbolta.

Fjórir leikjanna fara fram í kvöld og umferðin klárast síðan með tveimur leikjum á morgun. Þetta er þriðja síðasta umferð deildarkeppninnar og nú fara úrslitin að ráðast.

„Það styttist heldur betur í endalokin á deildarkeppninni og þetta er ennþá galopið. Nú fer hver einasti leikur að skipta heldur betur miklu máli. Það eru bara þrír leikir eftir,“ sagði Stefán Árni Pálsson.

„Það getur ýmislegt gerst ennþá. Það geta fullt að liðum orðið deildarmeistarar og svo verðum við að sjá hvernig þetta raðast í sætunum fyrir neðan líka. Það er mikið opið og þetta verður þrælskemmtilegt,“ sagði Ásgeir Örn Hallgrímsson.

Haukar, Valur, ÍBV og FH geta orðið deildarmeistarar þótt að tveir tapleikir í röð hafi minnkað möguleika FH-inga mikið.

„Ef Valsarar klára sitt þá verða þeir deildarmeistarar og ef Haukar klára sitt þá verða þeir meistarar. Svo þurfa FH og ÍBV að treysta á önnur úrslit til að verða meistarar,“ sagði Ásgeir Örn.

Hér fyrir neðan má sjá Stefán og Ásgeir fara yfir alla leiki umferðarinnar.

Klippa: Seinni bylgjan: Upphitun fyrir tuttugustu umferð Olís deildar karla í handbolta



Fleiri fréttir

Sjá meira


×