Innlent

Höfum við efni á barna­fá­tækt?

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Á þinginu kynna Tinna Laufey Ásgeirsdóttir og Gylfi Zoega prófessorar við Háskóla Íslands skýrslu sem unnin var fyrir Velferðarsjóð um ójöfnuð meðal íslenskra barna.
Á þinginu kynna Tinna Laufey Ásgeirsdóttir og Gylfi Zoega prófessorar við Háskóla Íslands skýrslu sem unnin var fyrir Velferðarsjóð um ójöfnuð meðal íslenskra barna. Vísir/Vilhelm

Íslensk erfðagreining stendur fyrir málþingi um barnafátækt klukkan 13 til 15 í dag. Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar stýrir pallborði og meðal þátttakenda eru Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

Prófessorarnir Tinna Laufey Ásgeirsdóttir og Gylfi Zoega kynna skýrslu sem unnin var fyrir Velferðarsjóð um ójöfnuð meðal íslenskra barna en málþingið er haldið til minningar um Valgerði Ólafsdóttur þroskasálfræðing, stofnanda og fyrrverandi framkvæmdastjóra Velferðarsjóðs barna sem féll frá í nóvember í fyrra. 

Öllum er velkomið að mæta á staðinn en þingið fer fram í húsnæði Íslenskrar erfðagreiningar að Sturlugötu 8 í Reykjavík.

Hér er hægt að nálgast beint streymi frá viðburðinum.

Dagskráin er eftirfarandi:

Tinna Laufey Ásgeirsdóttir og Gylfi Zoega prófessorar við HÍ: Ójöfnuður meðal íslenskra barna – staða og mögulegar leiðir

Ásta Þórdís Skjalddal samhæfingarstjóri PEPP: Að alast upp í fátækt

Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar: Tómstundir barna – mismunun hvert leiðir hún

Kolbeinn Stefánsson dósent við félagsráðgjafadeild HÍ: Eru börn fjárfesting eða útgjöld?

Pallborð – Kári Stefánsson stjórnarformaður Velferðarsjóðs barna stýrir umræðum: Viljum við að öll börn fái jöfn tækifæri? Og hvað má það kosta?

Þátttakendur í Pallborði:

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í Reykjavík

Tinna Laufey Ásgeirsdóttir prófessor

Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í Hafnarfirði




Fleiri fréttir

Sjá meira


×