Innlent

Ók undir áhrifum fíkniefna með skotvopn og kylfu í bílnum

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Við leit lögreglu fannst skothelt vesti, skotvopn og kylfa í bíl ökumannsins. 
Við leit lögreglu fannst skothelt vesti, skotvopn og kylfa í bíl ökumannsins.  Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í dag. 

Lögreglan stöðvaði fyrr í dag ökumann í Hlíðunum en maðurinn reyndist vera undir áhrifum fíkniefna við akstur. Þegar lögregla leitaði í bíl mannsins fannst skotvopn, skothelt vesti og kylfa.

Ökumaðurinn og farþegi hans voru handtekin og vistuð í fangaklefa að því er kemur fram í dagbók lögreglu.

Meðal annarra verkefna lögreglu var þjófnaður og innbrot auk þess sem tilkynnt var um krakka að stökkva milli skúra í Hafnarfirði. Þegar lögregla mætti á staðinn var þó ekkert að sjá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×