Sport

Dagskráin í dag: Subway-deildin, Lengjubikarinn, landsleikir og margt fleira

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Víkingar geta bætt enn einum titlinum í safnið með sigri gegn FH-ingum í dag.
Víkingar geta bætt enn einum titlinum í safnið með sigri gegn FH-ingum í dag. Vísir/Hulda Margrét

Sllir ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi á sportrásum Stöðvar 2, en alls er boðið upp á ellefu beinar útsendingar úr hinum ýmsu íþróttum í dag.

Stöð 2 Sport

Grindavík og ÍR mætast í Subway-deild karla klukkan 18:05 í gríðarlega mikilvægum leik. Grindvíkingar geta endanlega tryggt sér sæti í úrslitakeppninni með sigri, en ÍR-ingar eru svo gott sem búnir að missa af sínu sæti ef þeir tapa.

Klukkan 20:00 fer svo fram ekki síður mikilvægur leikur þegar Njarðvíkingar taka á móti nýkrýndum bikarmeisturum Stjörnunnar. Njarðvíkingar mega ekki við því að misstíga sig í baráttunni um deildarmeistaratitilinn og Stjarnan er í harðri baráttu um heimaleikjarétt í úrslitakeppninni.

Að þessum leikjum loknum er Subway Körfuboltakvöld svo á dagskrá þar sem farið verður yfir allt það helsta úr liðinni umferð.

Stöð 2 Sport 2

Tveir vináttulandsleikir verða á dagskrá á Stöð 2 Sport 2, en það er viðureign Noregs og Slóvakíu klukkan 17:50 annars vegar, og hins vegar viðureign Frakklands og Fílabeinsstrandarinnar klukkan 20:00.

Stöð 2 Sport 4

Íslandsmeistarar Víkings taka á móti FH í úrslitaleik Lengjubikars karla í beinni útsendingu klukkan 16:45.

Klukkan 19:50 er svo komið að viðureign Breiðabliks og Aftureldingar í undanúrslitum Lengjubikars kvenna.

Klukkan 22:30 fylgir JTBC Classic á LPGA-mótaröðinni í golfi áhorfendum inn í nóttina.

Stöð 2 Golf

Fyrstu menn á Qatar Masters á DP World Tour eiga rástíma klukkan 09:00 og klukkan 18:00 er það WGC Match Play sem á sviðið.

Stöð 2 eSport

Ljósleiðaradeildin í CS:GO er á sínum stað á Stöð 2 eSport klukkan 20:15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×