Innlent

Til­kynnt um slags­mál á Lauga­vegi, líkams­á­rás og há­vært píp

Atli Ísleifsson skrifar
Lögregla var meðal annars kölluð út vegna líkamsárásar, slagsmála og háværs píps sem hélt vöku fyrir íbúum í miðborg Reykjavíkur í nótt.
Lögregla var meðal annars kölluð út vegna líkamsárásar, slagsmála og háværs píps sem hélt vöku fyrir íbúum í miðborg Reykjavíkur í nótt. Vísir/Vilhelm

Lögregla á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í nótt og í morgun þar sem meðal annars var tilkynnt um líkamsárás, slagsmál og hávært píp sem hélt vöku fyrir íbúum í miðborg Reykjavíkur.

Í skeyti frá lögreglu segir að skömmu fyrir miðnætti hafi verið tilkynnt um mann með ógnandi hegðun í miðborginni þar sem einn maður var handtekinn og gistir hann nú fangageymslu.

Nokkru síðar var tilkynnt um hávært píp-hljóð sem hélt vöku fyrir íbúum í miðborginni. Við athugun kom í ljós að hljóðið hafi komið frá rafmagnshjóli. Varð aftur hljótt þegar búið var að aftengja rafgeyminn.

Í skeyti frá lögreglunni segir að skömmu eftir miðnætti hafi verið tilkynnt um slagsmál á Laugavegi en ekkert hafi verið að sjá þegar lögreglu hafi borið að garði. Þá var lögregla einnig kölluð út vegna manns í Grafarholti sem neitaði að greiða reikning eftir leigubílaferð.

Um fjögur leytið í nótt var tilkynnt um líkamsárás miðsvæðis í Reykjavík og handtók lögregla einn vegna hennar. Segir að málið sé í rannsókn en ekki er vitað um meiðsli þess sem ráðist var á.

Skömmu fyrir klukkan tíu í morgun var svo tilkynnt um ógnandi mann í miðborg Reykjavíkur og var málið afgreitt á vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×