Innlent

Bein útsending: Hafa víðerni virði?

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fleiri þúsund ferkílómetra óbyggðra víðerna er að finna á Íslandi.
Fleiri þúsund ferkílómetra óbyggðra víðerna er að finna á Íslandi. Stofnun Sæmundar fróða

Hvað eru víðerni? Af hverju skipta þau máli? Hversu mikilvæg eru íslensk víðerni í alþjóðlegu samhengi? Hvert er viðhorf ferðamanna og ferðaþjónustuaðila til víðerna?

Þessum spurningum og mörgum fleirum verður varpað fram á heils dags ráðstefnu um víðerni sem haldin verður í Norræna húsinu á föstudaginn kemur. Málþinginu er ætlað að vera umræðugrundvöllur um víðerni út frá ólíkum sjónarmiðum en fyrir liggur að kortleggja þurfi víðerni Íslands í ljósi breytinga á náttúruverndarlögum.

„Í framhaldi þarf að taka afstöðu til þess hvort ástæða sé til að vernda sérstaklega tiltekin svæði á Íslandi sem óbyggð víðerni. Í því samhengi má t.d. nefna ítarlega endurskoðun á stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs og hvaða gildi óbyggð víðerni eigi að hafa í rammaáætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða,“ segir í tilkynningu vegna ráðstefnunnar.

Ráðstefnan hefst með ávarpi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfisráðherra klukkan 10. Streymi frá ráðstefnunni má sjá að neðan.

Málþingið er haldið af Stofnun Sæmundar Fróða um sjálfbæra þróun við Háskóla Íslands í samvinnu við Vatnajökulsþjóðgarð.

„Við stöndum á tímamótum. Loftslagsbreytingar og tap á líffræðilegri fjölbreytni knýja mannkynið til víðtækra breytinga í átt að sjálfbærum lífsháttum. Umræða um gildi víðerna og breið sátt um fyrir hvað þau standa er mjög mikilvægur þáttur í aðlögun að loftslagsbreytingum og vernd vistkerfa og lífríkis. Einnig er mikilvægt að ræða gildi víðerna fyrir komandi kynslóða og rétt þeirra til að njóta einveru og kyrrðar án truflunar. Málþing sem þetta er því mjög gott tækifæri til að ræða ólík sjónarhorn og viðhorf“, segir Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða.

Dagskrá ráðstefnunnar má sjá að ofan.

Tengdar fréttir

Ís­lendingum beri skylda til að standa vörð um ó­byggðirnar

Jarðfræðingur telur að nákvæmasta kortlagning íslenskra óbyggða til þessa, sem kynnt var í dag, muni nýtast vel við friðlýsingar framtíðarinnar. Breskur stjórnandi kortlagningarinnar segir að Íslendingum beri skylda til þess að vernda svæðin.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×