Fótbolti

Dortmund gefur Bayern andrými

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Giovanni Reyna og Jude Bellingham, leikmenn Borussia Dortmund.
Giovanni Reyna og Jude Bellingham, leikmenn Borussia Dortmund. Alexandre Simoes/Getty Images

Borussia Dortmund missteig sig í toppbaráttu þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld er liðið gerði 1-1 jafntefli við Köln. Liðið er nú sex stigum á eftir Bayern München.

Marius Wolf kom gestunum í Dortmund yfir snemma leiks en það endist ekki lengi. Sebastian Andersson jafnaði metin fyrir lok fyrri hálfleiks og staðan 1-1 er liðin gengu til búningsherbergja.

Þó Dortmund hafi reynt að sækja sigurinn í síðari hálfleik þá gekk það einfaldlega ekki upp og leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Dortmund nú sex stigum á eftir Bayern þegar bæði lið eiga sjö leiki eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×