Handbolti

Ísland mætir Austurríki í umspilinu fyrir HM

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Guðmundur Guðmundsson mun stýra íslenska landsliðinu gegn Austurríki í næsta mánuði.
Guðmundur Guðmundsson mun stýra íslenska landsliðinu gegn Austurríki í næsta mánuði. EPA-EFE/Tamas Kovacs

Íslenska karlalandsliðið í handbolta mun mæta Austurríki í umspilinu fyrir HM sem fram fer í janúar á næsta ári. Leikirnir munu fara fram í apríl.

Austurríki og Eistland mættust í síðari leik liðanna í kvöld en Austurríki vann fyrri leik liðanna. 

Gerðist það sama í kvöld en Austurríki vann einvígi þjóðanna samtals 62-57. Þar með var ljóst að Austurríki mun mæta íslenska landsliðinu í tveimur leikjum í apríl um sæti á HM.

Fyrri leikur Íslands og Austurríki mun að öllum líkindum fara fram í Bregenz þann 13. apríl og síðari leikurinn fer fram á Ásvöllum þremur dögum síðar, þann 16. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×