Fótbolti

Selma Sól skoraði í stórsigri | Berglind Björg og Svava unnu öruggan sigur

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Selma Sól Magnúsdóttir skoraði fimmta mark Rosenborg í dag.
Selma Sól Magnúsdóttir skoraði fimmta mark Rosenborg í dag. Vísir/Getty

Selma Sól Magnúsdóttir skoraði fimmta mark Rosenborg í afar sannfærandi 6-0 sigri gegn Avaldsnes í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Þá komu Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Svava Guðmundsdóttir við sögu í 5-2 útisigri gegn Roa í sömu deild.

Selma Sól lék allan leikinn á miðsvæðinu hjá Rosenborg í dag, en liðið hafði örugga 3-0 forystu þegar flautað var til hálfleiks. 

Gestirnir skoruðu sjálfsmark strax í upphafi síðari hálfleiks og Svava Sól skoraði fimmta mark liðsins eftir tæplega klukkutíma leik. Liðið bætti einu marki við undir lok leiksins og vann að lokum öruggan 6-0 sigur.

Leikurinn var hluti af fyrstu umferð tímabilsins og Rosenborg situr nú á topnnum með ansi góða markatölu.

Á sama tíma var Berglind Björg Þorvaldsdóttir í byrjunarliði Brann sem vann öruggan 5-2 sigur gegn Roa. Svava Rós Guðmundsdóttir kom inn af varamannabekknum eftir rétt rúmlega klukkutíma leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×