Sport

Dag­skráin í dag: Seinni bylgjan, Lengju­bikar­mörkin, Gametí­ví og Arena-deildin

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Valur vann ÍBV um helgina. Farið verður yfir leikinn í Seinni bylgjunni.
Valur vann ÍBV um helgina. Farið verður yfir leikinn í Seinni bylgjunni. Vísir/Hulda Margrét

Það er samantektar mánudagur á rásum Stöðvar 2 Sport í dag sem og keppt er í Arena-deildinni en þar berjast bestu lið landsins í Rocket League um Íslandsmeistaratitilinn.

Stöð 2 Sport

Klukkan 20.00 er komið að Seinni bylgjunni, kvenna. Þar verður farið yfir allt það helsta sem gerðist í Olís-deild kvenna í handbolta um helgina.

Klukkan 21.15 eru Lengjubikarmörk kvenna á dagskrá en þar verður farið yfir leiki helgarinnar og hvaða lið mætast í undanúrslitum.

Stöð 2 E-Sport

Klukkan 18.30 er Arena-deildin á dagskrá en þar mætast bestu lið landsins í Rocket League í keppni um Íslandsmeistaratitilinn.

Strákarnir í Gametíví eru á sínum stað klukkan 20.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×