Fótbolti

Dagný á leið í undanúrslit með West Ham

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Dagný Brynjarsdóttir er á leiðí undanúrslit FA-bikarsins.
Dagný Brynjarsdóttir er á leiðí undanúrslit FA-bikarsins. Getty/Warren Little

Dagný Brynjarsdóttir og stöllur hennar í West Ham eru á leið í undanúrslit FA-bikarsins eftir 1-0 sigur gegn C-deildarliði Ipswich Town í dag.

Dagný hóf leik á varamannabekknum, en kom inn á þegar um 25 mínútur voru til leiksloka. Eina mark leiksins skoraði Lisa Evans eftir undirbúning frá Melisa Filis.

Áður höfðu Manchester City og Arsenal tryggt sér sæti í undanúrslitum, en nú stendur yfir leikur Chelsea og Birmingham um seinasta lausa sætið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×