Fótbolti

Berlín átti aldrei möguleika gegn Bayern

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Robert Lewandowski skoraði tvö í kvöld.
Robert Lewandowski skoraði tvö í kvöld. EPA-EFE/FILIP SINGER

Bayern München vann öruggan 4-0 sigur á Union Berlín í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Kingsley Coman kom Þýskalandsmeisturum Bayern yfir snemma leik og Tanguy Nianzou tvöfaldaði forystuna um miðbik fyrri hálfleiks. 

Robert Lewandowski gulltrygði svo gott sem sigur heimamanna undir lok fyrri hálfleiks með marki úr vítaspyrnu.

Staðan 3-0 í hálfleik og eftir aðeins tveggja mínútna leik í síðari hálfleik var staðan orðin 4-0. Fleiri urðu þó mörkin ekki og þægilegur sigur heimamanna staðreynd.

Bayern er á toppi deildarinnar með 63 stig, sjö stigum meira en Borussia Dortmund sem á leik til góða í 2. sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×