Sport

Dagskráin í dag: Sófasunnudagur til sælu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Liverpool mætir Nottingham Forest í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í kvöld.
Liverpool mætir Nottingham Forest í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í kvöld. EPA-EFE/Tim Keeton

Það eru hvorki meira né minna en 17 beinar útsendingar á rásum Stöðvar 2 Sport í dag.

Stöð 2 Sport

Klukkan 15.00 hefst Landsmótið í golfhermum.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 12.20 hefst útsending frá leik Crystal Palace og Everton í 8-liða úrslitum FA-bikarsins. Klukkan 14.50 er komið að leik Southampton og Manchester City í sömu keppni.

Klukkan 17.35 er dregið í undanúrslit FA-bikarsins. Strax í kjölfarið er leikur Nottingam Forest og Liverpool en það er síðasti leikur 8-liða úrslitanna.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 11.20 hefst beint útsending frá leik Íslendingaliðs Venezia og Sampdoria í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Klukkan 13.50 hefst bein útsending frá leik Juventus og Salernitana í sömu deild.

Klukkan 16.50 er borgarslagurinn um Róm á dagskrá en þar mætast Roma og Lazio.

Klukkan 19.30 er komið að leik Houston Rockets og Memphis Grizzlies í NBA-deildinni í körfubolta.

Stöð 2 Sport 4

Klukkan 10.00 hefst bein útsending frá Aramco Saudi Ladies International-mótinu í golfi en það er hluti af LET-mótaröðinni.

Klukkan 15.50 er Íslendingaslagur á dagskrá þegar Martin Hermannsson og félagar í Valencia taka á móti Tryggva Snæ Hlinasyni og félögum hans í Zaragoza í spænska körfuboltanum.

Klukkan 19.35 er leikur Bologna og Atalanta í Serie A á dagksrá.

Stöð 2 Golf

Klukkan 10.30 hefst bein útsending frá Steyn City Championship-mótinu en það er hluti af DP-heimstúrnum. Klukkan 17.00 er Valspar Championship á dagskrá en það er hluti af PGA-mótaröðinni.

Stöð 2 E-Sport

Klukkan 11.00 heldur BLAST Premier áfram. Úrslitin hefjast svo klukkan 18.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×