Crystal Palace í undanúrslit eftir stórsigur gegn Everton

Crystal Palace er á leið í undanúrslit FA-bikarsins.
Crystal Palace er á leið í undanúrslit FA-bikarsins. Tom Dulat/Getty Images

Crystal Palace vann öruggan 4-0 sigur gegn Everton í átta liða úrslitum FA-bikarsins í fótbolta í dag og er þar með komið í undanúrslit keppninnar.

Gestirnir í Everton byrjuðu betur og virtust líklegri til að bjróta ísinn. Það var þó Marc Guehi sem skoraði fyrsta mark leiksins þegar hann kom Crystal Palace í forystu með góðu skallamarki eftir hornspyrnu Michael Olise.

Jean-Philippe Mateta skoraði annað mark Crystal Palace stuttu fyrir hálfleik og staðan var því 2-0 þegar gengið var til búningsherbergja.

Heimamenn komust svo í 3-0 á 79. mínútu með marki frá Wilfried Zaha áður en Will Hughes gulltryggði 4-0 sigur Crystal Palace þegar um tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Crystal Palace verður því í pottinum þegar dregið verður í undanúrslit FA-bikarsins klukkan 17:35 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.

Enska bikarkeppnin, FA Cup, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. FA Cup er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira