Real komið með tíu stiga for­skot á toppnum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Markaskorarar Real fagna ásamt liðsfélögum sínum.
Markaskorarar Real fagna ásamt liðsfélögum sínum. Rafa Babot/Getty Images

Topplið La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, vann 3-0 útisigur á Mallorca í eina leik kvöldsins. Karim Mostafa Benzema og Vinícius José Paixão de Oliveira Júnior með mörkin.

Staðan var markalaus í hálfleik en besta færið fengu heimamenn. Pablo Maffeo átti þá skot sem hafnaði í stönginni. 

Þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik braut toppliðið ísinn. Eins og svo oft áður á þessari leiktíð komu þeir Karim Benzema og Vinícius Júnior að markinu. Að þessu sinni var það Benzema sem lagði boltann upp á Vinícius sem skoraði af stuttu færi.

Þegar þrettán mínútur lifðu leiks vann Vinícius boltann rétt fyrir utan teig og tók á rás. Hann var kominn alla leið inn í vítateig Mallorca þegar hann var felldur og vítaspyrna dæmd. 

Benzema fór á punktinn og skoraði af öryggi, staðan orðin 2-0 gestunum í vil og ekki löngu síðar var hún orðin 3-0. Marcelo, sem var þá nýkominn inn af bekknum átti þá fyrirgjöf sem Benzema stangaði í netið og gulltryggði þar með 3-0 sigur gestanna.

Real nú komið með 10 stiga forskot á toppi deildarinnar en liðið er sem stendur með 66 stig eftir 28 leiki. Sevilla er í 2. sæti með 58 og Barcelona í 3. sæti með 51 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira