Fótbolti

Mikael og félagar sóttu stig gegn Bröndby

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Mikael Anderson.
Mikael Anderson. AGF

Íslendingalið AGF gerði ágætis ferð til Kaupmannahafnar þar sem liðið heimsótti Bröndby í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Mikael Neville Anderson hóf leik á miðju AGF við hlið Jack Wilshere. Lék Mikael allan leikinn. Jón Dagur Þorsteinsson sat hins vegar allan tíman á varamannabekk AGF.

Leiknum lauk með 1-1 jafntefli þar sem Bröndby náði forystunni í fyrri hálfleik en gestirnir jöfnuðu snemma í síðari hálfleik. 

Stefán Teitur Þórðarson kom inn af bekknum hjá Silkeborg á 55.mínútu þegar liðið beið lægri hlut fyrir Randers, 2-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×