Sport

Dagskráin í dag - Tíu beinar útsendingar

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Albert Guðmundsson leikur með Genoa.
Albert Guðmundsson leikur með Genoa. vísir/getty

Af nægju er að taka á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag þar sem fjölbreytileikinn verður í fyrirrúmi.

Það verður ítalskur fótbolti í beinni útsendingu nær allan daginn en fyrst mætast Fiorentina og Bologna klukkan 11:30 á Stöð 2 Sport 3. Í kjölfarið er komið að viðureign Hellas Verona og Napoli en því næst eða klukkan 16:50 er komið að Íslendingaliði Genoa.

Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson verður að öllum líkindum í byrjunarliði Genoa þegar liðið heimsækir hið stórskemmtilega lið Atalanta.

Síðasti leikur dagsins á Ítalíu er viðureign Torino og Inter klukkan 19:45.

Þar fyrir utan verður meðal annars íslenskur fótbolti, íslenskur og bandarískur körfubolti og golf á dagskrá Stöðvar 2 Sport svo eitthvað sé nefnt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×