Fótbolti

Bayern München endurheimti toppsætið

Atli Arason skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir í meistaradeildarleik með Bayern gegn Benfica.
Glódís Perla Viggósdóttir í meistaradeildarleik með Bayern gegn Benfica. Getty/Gualter Fatia

Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn í 2-4 sigri Bayern München á útivelli gegn Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn af varamannabekknum á 81. mínútu og spilaði rúmar 10 mínútur. Cecelía Rán Rúnarsdóttir sat allan tíman á varamannabekknum.

Bayern er því aftur komið á topp deildarinnar með tveimur stigum meira en Wolfsburg sem er í öðru sæti. Wolfsburg á þó einn leik til góða á Bayern.

Næsti leikur Bayern er gegn Frankfurt þann 18. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×