Fótbolti

Sverrir og félagar fara með forystu í seinni leikinn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Sverrir Ingi Ingason og félagar hans í PAOK unnu góðan sigur í Sambandsdeildinni í kvöld.
Sverrir Ingi Ingason og félagar hans í PAOK unnu góðan sigur í Sambandsdeildinni í kvöld. Joaquin Corchero / Europa Press Sports via Getty Images

Sverrir Ingi Ingason og félagar hans í gríska liðinu PAOK unnu 1-0 sigur er liðið tók á móti Gent frá Belgíu í Sambandsdeild Evrópu í kvöld.

Sverrir lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá PAOK, en það var Jasmin Kurtic sem skoraði eina mark kvöldsins eftir tæplega klukkutíma leik.

Liðin mætast í Belgíu eftir slétta viku og þá kemur í ljós hvort liðið tryggir sér farseðilinn í átta liða úrslit.

Þrír aðrir leikir fóru fram á sama tíma. Roma vann 1-0 útisigur gegn Vitesse, Slavia Prague vann öruggan 4-1 sigur gegn LASK og Feyenoord er í góðum málum eftir 5-2 útisigur gegn Partizan Beograd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×