Sport

Anton Sveinn náði aftur EM og HM lág­mörkum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Anton Sveinn McKee hefur búið í Bandaríkjunum og æft þar um árabil. 
Anton Sveinn McKee hefur búið í Bandaríkjunum og æft þar um árabil.  EPA/VALDRIN XHEMAJ

Sundkappinn Anton Sveinn McKee hefur heldur betur átt góða undanfarna daga. Hann tryggði sig fyrst inn á bæði EM og HM í 100 metra bringusundi og gerði í nótt slíkt hið sama í 200 metra bringusundi.

Anton Sveinn keppti í nótt á TRY PRO-mótaröðinni en fór keppnin að þessu sinni fram í Westmont í Bandaríkjunum. „Víkingurinn“ Anton hafði náð frábærum árangri aðeins degi áður er hann synti frábærlega í 100 metra bringusundi en nú var komið að 200 metrunum.

Anton Sveinn gerði sér lítið fyrir og var fyrstur inn í úrslitasundið á tímanum 2:15,91 mínútu. Hann gerði svo gott betur í úrslitasundinu þar sem hann synti á 2:12,68 mínútum og kom þriðji í mark.

Íslandsmetið – sem Anton á sjálfur – er 2:10,21 mínútur.

Anton Sveinn er því nú þegar búinn að tryggja sér sæti á HM50 sem fram fer í Búdapest í Ungverjalandi í júní og EM50 sem fram fer í Róm á Ítalíu. Mun hann keppa í bæði 100 metra og 200 metra bringusundi þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×