Fótbolti

Lyngby misstígur sig í toppbaráttunni

Atli Arason skrifar
Freyr Alexandersson og Sævar Atli Magnússon
Freyr Alexandersson og Sævar Atli Magnússon Mynd/Lyngby

Danska liðið Lyngby, undir stjórn Freys Alexanderssonar, gerði 1-1 jafntefli við FC Fredericia á heimavelli í dönsku fyrstu deildinni í dag.

Kristian Kirkegaard kom Fredericia yfir á 32. mínútu áður en að Frederik Gytkjær jafnaði á 50. mínútu. Sævar Atli Magnússon kom inn af varamannabekknum þegar sex mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Jafnteflið þýðir að Hvidovre getur náð öðru sætinu af Lyngby, ef Hvidovre vinnur leik sinn gegn Horsens á morgun. Efstu tvö lið deildarinnar fara upp í efstu deild en eftir morgundaginn eiga öll lið eftir að spila þrjá leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×