Fótbolti

Bandaríska kvennalandsliðið fær jafn mikið greitt og karlalandsliðið

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Bandaríska kvennalandsliðið í fótbolta fær loksins jafn mikið greitt og kollegar þeirra í karlalandsliðinu.
Bandaríska kvennalandsliðið í fótbolta fær loksins jafn mikið greitt og kollegar þeirra í karlalandsliðinu. Brad Smith/ISI Photos/Getty Images

Bandaríska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur náð samkomulagi við stjórn knattspyrnusambandsins þar í landi um að leikmenn liðsins fái jafn mikið greitt fyrir vinnu sína með landsliðinu og kollegar þeirra í karlalandsliðinu.

Leikmennirnir munu fá 24 milljónir dollara, sem samsvarar um þremur milljörðum íslenskra króna. Þá hefur knattspyrnusamband bandaríkjanna lofað því að karla- og kvennaliðið fái jafn mikið greitt fyrir öll mót, þar með talið HM.

Allir 28 leikmenn bandaríska kvennalandsliðsins höfðuðu mál gegn bandaríska knattspyrnusambandinu árið 2019 vegna mismununar. Alex Morgan, framherji liðsins, segir þetta risastórt skref fyrir kvennaknattspyrnuna.

„Þetta er ótrúlegur dagur,“ sagði Morgan í samtali við sjónvarpsþáttinn Good Morning America.

„Þetta er risastórt skref áfram í átt að því að finna að maður er metin og að maður finni fyrir virðingu. Líka bara í átt að því að ná sáttum við knattspyrnusambandið, þar sem sambandið á milli okkar hefur verið frekar stirt.“

„Það er algjörlega frábært að taka þetta skref. Ég horfi ekki á þetta sem bara sigur fyrir liðið eða konur í íþróttum, heldur fyrir konur almennt.“

Megan Rapinoe, liðsfélagi Morgan í bandaríska landsliðinu, tók í sama streng.

„Ég held að við eigum eftir að horfa til baka á þennan dag og segja að þetta hafi verið augnablikið sem knattspyrnan í Bandaríkjunum breyttist til hins betra,“ sagði Rapinoe.

„Eitthvað eins og þetta mun líklega aldrei gerast aftur og nú getum við haldið áfram að gera fótboltann í þessu landiað því besta sem við mögulega getum og næstu kynslóðir munu hafa það svo miklu betra en við höfum haft það.“

Bandaríska kvennalandsliðið vann sitt fjórða Heimsmeistaramót árið 2019, en liðið hefur einnig fagnað sigri á Ólympíuleikunum fimm sinnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×