Enski boltinn

Úlfarnir lögðu Leicester að velli

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Úlfarnir eygja von á Meistaradeildarsæti.
Úlfarnir eygja von á Meistaradeildarsæti. vísir/Getty

Wolverhampton Wanderers skellti Leicester City í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Úlfarnir hafa ekki sagt sitt síðasta í baráttunni um fjórða sæti deildarinnar og hafa verið á miklu flugi að undanförnu. 

Leikurinn byrjaði vel fyrir heimamenn því portúgalski miðjumaðurinn Ruben Neves kom Wolves yfir strax á níundu mínútu.

Ademola Lookman jafnaði metin fyrir gestina skömmu fyrir leikhlé og fóru liðin með jafna stöðu í hálfleikinn.

Í síðari hálfleik var það svo Daniel Podence sem reyndist hetja heimamanna þegar hann skoraði það sem reyndist sigurmark leiksins á 66.mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×