Enski boltinn

Kennir loftræstingunni í flugvélinni um slæma frammistöðu

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Thomas Tuchel segir að loftræstingin í fluginu frá Abú Dabí hafi haft áhrif á frammistöðu Chelsea í gær.
Thomas Tuchel segir að loftræstingin í fluginu frá Abú Dabí hafi haft áhrif á frammistöðu Chelsea í gær. EPA-EFE/VICKIE FLORES

Eftir að Chelsea tryggði sér heimsmeistaratitil félagsliða um síðustu helgi var liðið ekki sannfærandi í 1-0 sigri sínum gegn Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í gær. Thomas Tuchel, þjálfari liðsins, telur sig þó vera með skýringu á því.

Stjórinn var auðvitað ánægður með stigin þrjú eftir erfiða ferð til Abú Dabí þar sem liðið vann sigur gegn Palmeiras í úrslitaleik HM félagsliða. Liðið leit hins vegar ekkert sérstaklega vel út í sigri sínum gegn Crystal Palace í gær, en Þjóðverjinn segir að ýmsir þættir spili þar inn í.

„Ég verð að halda ró minni núna,“ sagði Tuchel eftir leikinn gegn Crystal Palace.

„Svona vika virkar þannig að við erum að koma frá landi þar sem er þrjátíu gráðum heitara en hér, við erum með sex leikmenn sem fengu kvef út af loftræstingunni í flugvélinni, leikmenn eru að glíma við flugþreytu eftir flugið frá Abú Dabí og það náði enginn af okkar leikmönnum góðum svefni í ferðinni vegna hita og tímamismunar,“ sagði Tuchel þegar gefið var í skyn að hans leikmenn hafi grætt á því að fá viku frí fyrir leik gærdagsins.

„Þannig að við erum að glíma við sömu vandamál og aðrir. Ef þú heldur að við höfum haft venjulega viku til að undirbúa okkur þá get ég sagt þér að það er alls ekki svoleiðis. Við erum að reyna að lifa af í augnablikinu eins og þú sérð.“

„Það er gríðarleg pressa á þér þegar þú ferð á HM og vilt vinna það fyrir Chelsea. Leikmennirnir setja miklar kröfur á sjálfa sig og við höfum ekki spilað í ensku úrvalsdeildinni í fjórar vikur. Þetta er stór blanda af mörgum skrítnum ástæðum og persónulega gerði ég ekki of miklar væntingar til frammistöðunnar í dag,“ sagði Tuchel að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×