Innlent

Stein­þór Jón vill 5. sætið hjá Sjálf­stæðis­mönnum í Reykja­nes­bæ

Atli Ísleifsson skrifar
Steinþór Jón Gunnarsson.
Steinþór Jón Gunnarsson. Aðsend

Steinþór Jón Gunnarsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ sem fram fer þann 26. febrúar næstkomandi.

Í tilkynningu segir að Steinþór Jón sé 34 ára gamall og búi í Innri-Njarðvík ásamt kærustu sinni Guðrúnu Ýri Halldórsdóttur og börnunum þeirra þremur.

„Ég hef búið hér síðastliðin fjögur ár og hér viljum við fjölskyldan vera enda kynnst mikið af góðu fólki og hér líður okkur vel.

Ég er rafvirki að mennt og á og rek Prism Ljósastudio hér í bæ. Atvinnumál eru mér hugleikin ásamt leikskóla og húsnæðismálum.

Við þurfum að grípa tækifærin og sýna stórum sem smáum fyrirtækjum að hér er hægt að skapa verðmæti, ásamt því að hlúa vel að þeim sem fyrir eru. Ég vil skapa hér sterkan miðbæ með fjölbreyttri þjónustu og verslunum.

Það skiptir miklu máli að hér sé bæði hægt að búa og starfa án þess að þurfa að leita langt yfir skammt.

Ég tel mig vera mann sem lætur verkin tala og er reiðubúinn að leggja mitt að mörkum í að skapa hér gott og samkeppnishæft samfélag.

Grípum tækifærin og látum verkin tala. Ég óska eftir stuðningi íbúa Reykjanesbæjar í 5. sætið í næstkomandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins þann 26. febrúar,“ segir í tilkynningunni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×