Madrídingar misstigu sig í toppbaráttunni

Gareth Bale var í byrjunarliði Real Madrid í dag.
Gareth Bale var í byrjunarliði Real Madrid í dag. Aitor Alcalde Colomer/Getty Images

Topplið Real Madrid þurfti að sætta sig við markalaust jafntefli er liðið heimsótti Villareal á erfiðan útivöll í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Gestrinir frá Madríd voru meira með boltann í dag og virkuðu líklegri til að skora. Ekkert varð þó úr því og því varð nðurstaðan markalaust jafntefli.

Madrídingar voru komnir með ágætis forskot á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar, en liðið hefur nú gert tvö jafntefli í seinustu þremur leikjum sínum.

Þeir sitja þó enn á toppi deildarinnar með 54 stig eftir 24 leiki, fjórum stigum meira en Sevilla sem situr í öðru sætinu. Villareal situr hins vegar í fimmta sæti deildarinnar með 36 stig og er í harðri baráttu um sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira