United tapaði mikilvægum stigum gegn botnliðinu

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Jay Rodriguez skoraði jöfnunarmark Burnley.
Jay Rodriguez skoraði jöfnunarmark Burnley. Clive Brunskill/Getty Images

Manchester United tapaði mikilvægum stigum er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn botnliði Burnley í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Gestirnir frá Manchester byrjuðu af miklum krafti og varnarmaðurinn Raphael Varane kom boltanum í netið eftir tæplega tólf mínútna leik. Eftir skoðun myndbandsdómara var Mike Dean, dómari leiksins, sendur sjálfur í skjáinn og markið dæmt af þar sem að Harry Maguire var rangstæður þegar hann hindraði varnarmann Burnley.

Gestirnir voru þó ekki lengi að jafna sig á þessi því þeir komust yfir sex mínútum síðar með marki frá Paul Pogba eftir stoðsendingu frá Luke Shaw.

Aðeins ör­fá­um mín­út­um síðar varð Ben Mee, fyr­irliði Burnley, fyrir því óláni að setja bolt­ann í eigið mark, en aftur var markið dæmt af gestunum. Í þetta skipti var Paul Pogba dæmdur brotlegur í aðdraganda marksins.

Staðan var því 1-0 í hálfleik, gestunum í vil, en síðari hálfleikur var ekki nema tveggja mínútna gamall þegar að heimamenn jöfnuðu metin. Þar var á ferðinni Jay Rodriguez eftir stoðsendingu frá nýja manninum Wout Weghorst.

Bæði lið fengu ágætis færi til að finna sigurmarkið, og þrátt fyrir þunga sókn gestanna á lokamínútunum varð niðurstaðan 1-1 jafntefli.

Manchester United situr nú í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 39 stig eftir 23 leiki, einu stigi minna en West Ham sem situr í fjórða og seinasta Meistaradeildarsætinu. Burnley siutr hins vegar sem fastast á botni deildarinnar með 14 stig eftir 20 leiki, en á tvo leiki til góða á liðin fyrir ofan sig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira