Sport

Dagskráin í dag: Stútfullur íþróttaföstudagur

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Manchester United tekur á móti Middlebrough í FA-bikarnum í kvöld.
Manchester United tekur á móti Middlebrough í FA-bikarnum í kvöld. AP/Jon Super

Sportrásir Stöðvar 2 bjóða upp á hvorki meira né minna en 13 beinar útsendingar á þessum kalda föstudegi og því ætti engum að leiðast uppi í sófa í dag.

Stöð 2 Sport

Subway-deild karla í körfubolta ræður ríkjum á Stöð 2 Sport í kvöld. Klukkan 18:05 hefst bein útsending frá viðureign ÍR og Íslandsmeistara Þórs frá Þorlákshöfn áður en skipt verður yfir til Njarðvíkur klukkan 20:00 þar sem heimamenn taka á móti KR.

Klukkan 22:00 er Subway körfuboltakvöld á dagskrá þar sem farið verður yfir allt það helsta úr liðinni umferð.

Stöð 2 Sport 2

Einn leikur fer fram í elstu og virtustu bikarkeppni heims í kvöld þegar Manchester United tekur á móti Middlebrough í FA-bikarnum klukkan 19:50.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 19:40 hefst útsending frá leik Birmingham og Sheffield United í ensku 1. deildinni.

Stöð 2 Sport 4

Bein útsending frá Drive On Championship á LPGA-mótaröðinni hefst klukkan 20:00.

Stöð 2 Golf

Klukkan 08:30 hefst bein útsending frá Ras al Khaimah Champonship á DP World Tour og klukkan 20:00 hefst svo bein útsending frá AT&T Pebble Beach Pro-Am á PGA-mótaröðinni.

Stöð 2 eSport.

BLAST Premier í CS:GO heldur áfram og hefst útsending klukkan 11:30 og verður langt fram eftir degi.

Þeir sem bara fá ekki nóg af CS:GO þurfa ekki að örvænta þar sem að einnig eru tveir leikir á dagskrá í Ljósleiðaradeildinni frá klukkan 20:15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×