Heimsmarkmiðin

Alvarlegur matvælaskortur í tuttugu löndum

Heimsljós
Ljósmynd: SÞ

Líklegt er að alvarlegur matvælaskortur eigi eftir að aukast á næstu mánuðum í tuttugu löndum eða á tilteknum svæðum, að mati Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO).

Samkvæmt nýútgefinni skýrslu stofnananna eru horfur dökkar fyrir tímabilið frá febrúar til maí á þessu ári og viðbúið að hungur setji líf milljóna manna í bráða hættu.

Svæðin tuttugu í heiminum þar sem hungur sverfur að.

Samkvæmt skýrslunni – Hunger Hotspots FAO-WFP early warnings on acute food insecurity – er brýn þörf á markvissum mannúðaraðgerðum til bjargar mannslífum á fyrrnefndum tuttugu svæðum. Sérstaklega eru slíkar aðgerðir mikilvægar til að afstýra hungri og dauða í Eþíópíu, Nígeríu, Suður-Súdan og Jemen. Ennfremur er óttast um aðstæður íbúa Afganistan þar sem sífellt fleiri búa við sult.

Í skýrslunni er gerð grein fyrir tillögum um forgangsröðun neyðarviðbragða og aðgerða í hverju landi fyrir sig.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.






×