Innlent

176 greindust með Covid-19 innanlands í gær

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Fjöldi fólks sækir nú PCR- og hraðpróf á hverjum degi.
Fjöldi fólks sækir nú PCR- og hraðpróf á hverjum degi. Vísir/Vilhelm

195 greindust með Covid-19 í gær, þar af 176 innanlands.

Af smituðum innanlands voru 74 í sóttkví við greiningu en 102 utan sóttkvíar, samkvæmt covid.is. 

Ellefu sjúklingar liggja inni á Landspítalanum vegna Covid-19. Tveir eru á gjörgæsludeild, báðir í öndunarvél. Meðalaldur inniliggjandi er 75 ár.

1.560 sjúklingar eru í umsjá Covid-göngudeildar, þar af 571 barn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×