Jól

Jólalag dagsins: Greta Salóme og vinir flytja Jól eins og áður

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Rosalegur hópur listamanna á saman jólalag dagsins á Lífinu.
Rosalegur hópur listamanna á saman jólalag dagsins á Lífinu. Samsett

Nú eru jólin handan við hornið. Á sjónvarps- og útvarpsvef Vísis má finna fjölmörg hugljúf jólalög sem margir af okkar fremstu listamönnum hafa tekið í gegnum tíðina.

Lífið ætlar að telja niður til jóla með fallegu jólalagi úr safninu á hverjum degi fram að jólum. Í dag, 20. desember, bjóðum við upp á lagið Jól eins og áður, sem heyrðist fyrst fyrir síðustu jól og heimsfaraldur litaði hátíðarhöld Íslendinga. 

Lagið Jól eins og áður er eftir Gretu Salóme og Bjarka Bomarz Ómarsson en hann sá einnig um upptökustjórn. Ásamt Gretu Salóme koma fram þau Sverrir Bergmann, Sigga Beinteins, KK, DJ Muscleboy, Jón Gnarr, Ragnheiður Gröndal, Aron Mola, Birgir Steinn og Katrín Halldóra.


Tengdar fréttir








×