Innlent

Skipar starfs­hóp til að fjalla um blóð­mera­hald

Atli Ísleifsson skrifar
Svandís Svavarsdóttir er sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Svandís Svavarsdóttir er sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Vísir/Vilhelm

Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að skipa starfshóp til að fjalla um blóðtöku úr fylfullum hryssum til framleiðslu á efninu eCG, frjósemislyfja handa dýrum.

Frá þessu segir á vef stjórnarráðsins. Þar segir að starfshópnum verði falið að skoða starfsemina, regluverkið í kring um hana og eftirlit, auk þess að skoða löggjöf og mögulega framkvæmd slíkrar starfsemi erlendis.

„Fulltrúi ráðuneytisins mun leiða vinnuna en ráðherra mun óska eftir tilnefningum í starfshópinn frá Matvælastofnun og frá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands. Fundað verður með hagaðilum auk þess sem almenningi mun gefast kostur á að tjá sig um störf og tillögur hópsins á Samráðsgátt stjórnvalda þegar þær liggja fyrir. Starfshópurinn mun hefja störf á næstu dögum.

Verkefni starfshópsins er aðskilið rannsókn Matvælastofnunar, en stofnunin rannsakar nú meint alvarleg brot á velferð blóðtökuhryssna,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×