Innlent

Framtíð lífskjarasamningsins ræðst eftir helgi

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ. vísir/Arnar

Forseti ASÍ segir vonbrigði að stjórnvöld hafi ekki staðið við gefin loforð vegna lífskjarasamninganna. Einhugur sé þó innan ASÍ um að samningum verði ekki sagt upp þrátt fyrir að forsendur séu brostnar. Samtök atvinnulífsins taka ákvörðun eftir helgi.

Forsendunefnd ASÍ og Samtaka atvinnulífsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að forsendur lífskjarasamningsins séu brostnar hvað varðar all mörg mál sem stjórnvöld hétu að beita sér fyrir þegar samningarnir voru undirritaðir árið 2019.

„Það er yfirlýsing um vexti og verðtryggingu; þó vextir hafi lækkað er ýmislegt sem stendur út af þar. Það eru lífeyrismálin. Það eru húsaleigumálin; við ætluðum að styrkja réttarstöðu leigjenda. Það er kennitöluflakk; Það frumvarp er ekki enn komið í gegn, og síðan eru félagsleg undirboð á vinnumarkaði,“ segir Drífa Snædal, forseti ASÍ, aðspurð um dæmi um brostnar forsendur.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. vísir/Vilhelm

Samninganefndir ASÍ og Samtaka atvinnulífsins hittast á fundi á fimmtudaginn í næstu viku og ræða framtíð samningsins. Drífa segir einhug innan samninganefndar ASÍ um að samningnum verði ekki sagt upp þrátt fyrir forsendubrest. Meðal annars vegna þess að fólk eigi inni launahækkanir áður en hann rennur út í nóvemver á næsta ári.

„Og við viljum tryggja að okkar fólk fái þær launahækkanir. Að auki finnst mér það vera ábyrgðarhlutverk að koma vinnumarkaðnum ekki í uppnám á þessari stundu. Og svo má nefna að það væir undarleg staða að vera í kjaraviðræðum samhliða stjórnarviðræðum.“

Samningurinn er þó enn í uppnámi þar sem Samtök atvinnulífsins geta einnig sagt honum upp. Að sögn Halldórs Benjamíns Þorbergssonar framkvæmdastjóra SA hefur ekki verið tekin ákvörðun og fundað verður um málið eftir helgi.

Drífa segist vonsvikin yfir stöðunni og ókláruðum málum.

„Það eru að sjálfsögðu vonbrigði að ekki hafi verið hægt að ná lendingu í öllum þessum málum,“ segir Drífa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×