Bílar

Mercedes-Benz EQA - Rafjepplingur en klassískur Benz

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
EQA 250.
EQA 250.

EQA er fimm manna rafjepplingur sem hentar fólki sem hefur fágaðan en einfaldan smekk. Bíllinn er augljóslega Mercedes-Benz, þegar setið er í honum og honum ekið.

Útlit

EQA er stílhreinn og klassískur í útliti. Eins og Benz er von og vísa, fyrir utan G-Class en það er annað mál. EQA er ekki mikil áskorun fyrir augað, línurnar virka og þær samsvara sér vel. Hann ber ekki með sér að vera rafbíll, fyrir utan bláa línu í teinum felganna. Það er alltaf eitthvað.

Aksturseiginleikar

Bíllinn er afar þéttur í akstri og góður í langkeyrslu. Hann er mjög Benz legur í akstri, hann er ekki settur upp til að keppa við Tesla í 0-100 km/klst. Heldur til að vera aflmikill en ekki asnalega snöggur, hann fer „mjúklega“ úr kyrrstöðu í hundrað á um 6 sekúndum í hröðustu útgáfu en 8,5 í grunnútgáfunni.

Honum er ætlað að vera þægilegur og það tekst. EQA er eðli máls samkvæmt ekki ætlað að vera sportbíll svo hann er ekki sá snarpasti í stýrinu, sem er vel fyrir þennan bíl.

Innra rými í EQA.

Notagildi og innra rými

Bíllinn er þægilegur í umgengi, eins og jepplingar eru flestir. Þægilegt að setjast inn í hann og ganga um hann. Innréttingin er mjög klassísk fyrir Mercedes, vantar ekkert upp á það.

Það er bærilegt fótapláss aftur í en á sama tíma er skottið fremur lítið. Skottið á EQA er ekki fært um að gleypa samfellda barnakerru í heilu lagi, næstum því samt en þá fer ekki mikið annað með í skottið.

Drægni og hleðsla

Uppgefin drægni er 410 - 430 km. samkvæmt WLTP staðlinum. Askja gefur upp raundrægni að sumri til um 360 km og við íslenskar vetraraðstæður um 280 km. Ekkert í reynsluakstrinum gefur tilefni til efasemda um þær tölur.

EQA getur tekið 100 kW í hraðhleðslu og 11 kW í heimahleðslu.

EQA 250.

Verð og samantekt

EQA kostar frá 6.790.000 kr. og upp í 9.390.000 kr. Hann er vel verðlagður í grunnútgáfunni sem er vel búin, með hita í framsætum og nálgunarvara að framan og aftan, ásamt fleiru. Hann er fáanlegur fjórhjóladrifinn frá 7.590.000 kr.

EQA er skemmtilegur rafjepplingur sem er svo greinilega afurð Mercedes-Benz. Hann er Benz út í gegn og verandi rafbíll er þetta sennilega þegar öllu er á botninn hvolft ódýrasti nýi Benz sem þú getur eignast. En það er ekki eins og skorið sé við nögl í neinu. Afar þéttur og góður bíll fyrir fólk sem er ekki mikið að ferja fullorðna aftur í né mikinn farangur að staðaldri.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×