Bílar

Tesla ætlar að opna ofurhleðslustöðvar sínar fyrir öðrum framleiðendum

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hér ber að líta eina ofurhleðslustöð Tesla í Bandaríkjunum. 
Hér ber að líta eina ofurhleðslustöð Tesla í Bandaríkjunum.  Getty/Justin Sullivan

Elon Musk, framkvæmdastjóri Tesla hefur sagt að fyrir árslok muni eigendur annarra tegunda rafbíla geta notað ofurhleðslustöðvar Tesla. Hingað til hafa Tesla eigendur verið þau einu sem geta notað stöðvarnar.

Að opna á notkun annarra mun auðvelda aðgengi að hleðslustöðvum talsvert. „Við bjuggum til okkar eigin tengil þegar við byrjuðum, það var enginn staðall þá og Tesla var eini framleiðandi langdrægra rafbíla,“ skrifaði Musk á Twitter.

„Þetta er einn frekar grannur tengill fyrir bæði há- og lág spennu hleðslu. Að því sögðu munum við veita öðrum heimild til að nota ofurhleðsluinnviði okkar fyrir aðra framleiðendur seinna á árinu,“ bætti Musk við.

Aðspurður á Twitter hvort þetta ætti einungis við um takmörkuð svæði svaraði Musk að þetta myndi ná til allra svæða að endingu.

Smáatriðin eru ekki klár, eins og hvort alls staðar muni þurfa breytistykki. Eins er óljóst hvort ökumenn annarra en Tesla bifreiða muni þurfa að greiða meira eða hvort forgangur verður veittur fyrir Telsa eigendur, eða hvort hleðsluhraðinn verði takmarkaður fyrir aðra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×