Fótboltaveisla á Parken og Spánn í átta liða úrslitin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Cesar fagnar markinu sem kom Spáni í 3-2.
Cesar fagnar markinu sem kom Spáni í 3-2. Hannah McKay/Getty

Spánverjar eru komnir í átta liða úrslit Evrópumótsins 2020. Þeir spænsku unnu 5-3 sigur á Króatíu á Parken eftir stórskemmtilegan framlengdan leik.

Spánverjar byrjuðu af miklum krafti í Kaupmannahöfn og fengu tvö dauðafæri til þess að koma sér yfir en allt kom fyrir ekki.

Það voru Króatarnir sem náðu forystunni. Sending miðjumannsins Pedro til baka á markvörðinn Unai Simon endaði í netinu eftir hörmuleg mistök Simon.

Klippa: Klaufalegt sjálfsmark

Þvert gegn gangi leiksins voru því Króatar komnir yfir í hitanum á Parken en Spánverjar jöfnuðu metin á 38. mínútu eftir að hafa stýrt leiknum.

Eftir darraðadans og skothríð að marki Króata féll boltinn fyrir Pablo Sarabia sem kom boltanum í netið. Allt jafnt í leikhléi, 1-1.

Áfram héldu Spánverjar að spila vel í síðari hálfleik og það var Ferran Torres sem lagði upp annað markið fyrir César Azpilicueta á 57. mínútu.

Torres hafði átt nokkrar frábærar fyrirgjafir og eitt þeirra skilaði marki er hægri bakvörðurinn Azpilicueta mætti á fjærstöngina og skoraði sitt fyrsta landsliðsmark.

Króatarnir voru nálægt því að jafna metin á 66. mínútu er þeir áttu sitt besta spil í leiknum en Unai Simon sá við Nikola Vlasic eftir gott spil Króata.

Spánverjar gerðu hins vegar út um leikinn á 77. mínútu. Ferran Torres fékk langa sendingu yfir allan völlinn, komst fram fyrir sofandi varnarmenn Króatíu og skoraði.

Króatarnir voru ekki hættir og þeir minnkuðu muninn í 3-2 er fimm mínútur voru eftir. Ævintýralegur darraðadans endaði með því að boltinn var dæmdur inni með marklínutækninni en Mislav Orsic kom boltanum yfir línuna.

Dramatíkinn var ekki lokið því á 92. mínútu jöfnuðu Króatarnir metin. Fyrirgjöf varamannsins Mislav Orsic rataði beint á kollinn á Mario Pasalic sem stangaði boltann í netið. Lokatölur eftir venjulegan leiktíma, 3-3 og því þurfti að framlengja leikinn.

Króatarnir fengu dauðafæri á 96. mínútu. Eftir enn einn undirbúning Mislav Orsic fékk Andrej Kramaric boltan rétt fyrir utan markteiginn en Simon sá við honum með frábærri markvörslu.

Það var á tíundu mínútu framlengingarinnar er þeir spænsku komust yfir. Fyrirgjöf á fjærstöngina, Morata tók vel við boltanum og þrumaði boltanum í netið. Tveimur mínútum gerði Mikel Oyarzabal svo út um leikinn eftir fyrirgjöf Dani Olmo.

Króatar fengu annað dauðafæri í upphafi síðari hálfleiks framlengarinnar en inn vildi boltinn ekki. Spánir sigldu sigrinum í hús að lokum og lokatölur 5-3 í stórkostlegum fótboltaleik.

Spánverjar mæta annað hvort Frakklandi eða Sviss í átta liða úrslitunum en þau mætast klukkan 19.00.


Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira