Tékkar gengu á lagið gegn tíu Hollendingum og eru komnir í átta liða úrslit

Patrik Schick fagnar marki sínu í dag.
Patrik Schick fagnar marki sínu í dag. Alex Pantling/Getty Images

Hollendingar eru úr leik á EM eftir 1-0 tap gegn Tékkum á Puskas Arena í Búdapest í dag. Matthijs de Ligt fékk að líta rauða spjaldið í liði Hollendinga á 55.mínútu og Tékkar gengu á lagið og tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum.

Hollendingar voru sterkari aðilinn framan af fyrri hálfleik, en hvorugu liðinu tókst að skapa sér nægilega hættuleg færi til að taka forystuna.

Það var því enn markalaust í Búdapest þegar dómari leiksins flautaði til hálfleiks.

Donyell Malen fékk ákjósanlegt færi á  52. mínútu til að koma Hollendingum í forystu, en Tomas Vaclik sá við honum í marki Tékka.

Stuttu seinna virtust Tékkar vera að sleppa í gegn, en Matthijs de Ligt stöðvaði sókn þeirra með hendinni. 

Það tók nokkrar mínútur fyrir dómara leiksins að leysa úr því máli og að lokum fór Sergey Karasev í skjáinn góða og niðurstaðan var rautt spjald á de Ligt fyrir að handleika knöttinn.

Hollendingar þurftu því að leika seinustu 35 mínútur leiksins manni færri.

Tékkarnir gengu á lagið og á 68. mínútu voru þeir komnir með 1-0 forystu. Antonin Barak gaf boltann þá fyrir úr aukaspyrnu og Tomas Kalas skallaði boltann á Tomas Holes sem skallaði boltann í netið.

Patrik Schick kom Tékkum í 2-0 á 80. mínútu eftir að Tomas Holes átti flott hlaup inn á teiginn og fann samherja sinn með hnitmiðaðri sendingu.

Það eru því Tékkar sem eru á leið í átta liða úrslit, en Hollendingar eru á heimleið með sárt ennið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira